Skráning í sumarbúðirnar hefst á laugardaginn, þann 26. mars kl. 12:00

Á laugardaginn verður vorhátíð KFUM og KFUK: 

  • HOPPUKASTALAR –  FULLT AF ÞEIM
  • KAFFIHÚS –  GLÆSILEGT
  • CANDY-FLOSS – Á VÆGU VERÐI
  • ANDILITSMÁLUN – HVAÐ MEÐ ÞIG? 
  • HÚLLAHRINGIR –  HÚLLA, HÚLLA
  • VELTIBÍLL – SPENNANDI
  • KRAKKAHORN – FULLT AÐ GERA

Sannkölluð fjölskyldustemning. 

Á vorhátíðunum verður byrjað að skrá í sumarbúðir og KFUM og KFUK. Skráning hefst einnig á netinu http://skraning.kfum.is/ frá kl. 12:00. Athugið að í vissum tilvikum geta flokkar fyllst mjög hratt. ATHUGIÐ HÚSIÐ OPNAR KL. 12:00

Vorhátíðin á Holtavegi hefst kl. 12:00.

Einnig verður vorhátið á Akureyri (í Sunnuhlíð) sem hefst kl. 14:00

Allir hjartanlega velkomnir á vorhátíð KFUM og KFUK