Til að fá upplýsingar um leikjanámskeið SMELLIÐ HÉR.

Við bjóðum barnið þitt velkomið í sumarbúðir KFUM og KFUK í Kaldárseli. Það er markmið okkar að barninu líði vel í sumarbúðum okkar.

HÉR ERU NOKKRAR HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR FYRIR DVALARFLOKKA

1. Farangur
Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um nauðsynlegan farangur:

Sæng eða svefnpoki, koddi, lak, regnföt, úlpa, stígvél, íþróttaskór, lítill bakpoki og vatnsbrúsi f. lengri gönguferðir, inniíþróttaskór, inniskór (getur verið gólfkuldi á kvöldin) nærföt, nægir sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, vasaljós, sundföt, handklæði, sápa, tannbursti og tannkrem. Síðasta kvöldið í dvalarflokknum er veislukvöld og þá mega börnin hafa með sér snyrtileg föt til að vera í. Ekki er þvegið af börnunum í sumarbúðunum.

Vegna hættu á skemmdum eða slysum er þátttakendum óheimilt að hafa með sér hnífa eða önnur hættuleg tæki í sumarbúðirnar. Þátttakendur eru skaðabótaskyldir vegna skemmda sem þeir kunna að valda.

Dýr raftæki svo sem símar, spjaldtölvur, ipod og fleira slíkt má ekki koma með í Kaldársel. Í einstaka tilfellum hefur verið leyft að hafa meðferðis eitthvað sem getur spilað tónlist eða róandi sögu ef barnið á erfitt með að sofna án þess að hafa slíkt hjá sér en þá er það geymt hjá forstöðukonu/forstöðumanni og barnið fær það fyrir svefninn og skilar því inn aftur á morgnanna. Engin ábyrgð er tekin á svona tækjum.

Sælgæti og aðrar matvörur má ekki taka með nema í sérstökum aðstæðum þegar viðkomandi er með matarofnæmi, óþol eða er á sérfæði á einhvern hátt og þá skal ræða það sérstaklega áður en barnið kemur í sumarbúðirnar.

2. Fatamerking
Áríðandi er að merkja greinilega allan farangur og töskur með símanúmeri þátttakenda. Föt og aðrar eigur þátttakenda eru á ábyrgð þeirra sjálfra og verða ekki bættar ef eitthvað glatast eða skemmist. Gott er að gera nákvæman lista yfir farangur barnanna til að auðvelda þeim að pakka niður til heimferðar.

3. Óskilamunir
Hægt er að vitja óskilamuna í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Eftir 1. október áskilja sumarbúðirnar sér rétt til að ráðstafa ósóttum óskilamunum.

4. Lyf / læknisvottorð
Ekki þarf að koma með læknisvottorð, nema eins og segir í reglugerð: „Þeim börnum sem eiga við einhvers konar veikindi að stríða skal fylgja læknisvottorð þar sem fram komi upplýsingar um veikindin og skýr fyrirmæli læknis um meðferð, lyfjagjöf o.s.frv.“
Ef barnið tekur lyf, látið skriflegar leiðbeiningar fylgja með lyfinu og afhendið starfsmanni sumarbúðanna við brottför. Það sama á við ef eitthvað annað sérstakt gæti skipt máli varðandi heilsu barnsins og líðan. Í þessu samhengi er alltaf horft til þess hvernig hægt sé að mæta barninu sem best á allan hátt og því getur verið nauðsynlegt að hafa réttar upplýsingar.

5. Brottför – heimkoma
Brottför er frá Lækjarskóla í Hafnarfirði kl. 10:00 í almenna flokka, en foreldrar sækja börnin sín í Kaldársel kl 15 á heimfarardegi.

6. Myndbirting
KFUM og KFUK á Íslandi áskilur sér rétt til notkunar á myndum af þátttakendum í starfi og viðburðum á vegum félagsins. Félagið mun hafa að leiðarljósi að gæta varúðar og nærgætni við myndbirtingar í samræmi við leiðbeinandi álit persónuverndar.

7. Fyrirspurnir
Ef foreldrar vilja spyrjast fyrir um börn sín á meðan á dvölinni stendur er hægt að hringja í síma 555 6211 og ræða við starfsfólk. Símatími er kl. 11:15-12:00 alla daga.
Fréttir og myndir úr sumarbúðunum eru hér á heimasíðunni og birtast nánast daglega á meðan sumarstarfið er í gangi.