Þann 1.desember kom út nýi og skemmtilegi DVD diskurinn ,,Daginn í dag – Sunnudagaskólinn á DVD“ frá Skálholtsútgáfunni. Á disknum eru fjórir vandaðir og alíslenskir þættir sem miðla sígildum boðskap kristinnar trúar á nýjan og ferskan hátt.
Diskurinn er fáanlegur í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í Reykjavík, og kostar kr. 2490. Allur ágóði seldra eintaka í Þjónustumiðstöð mun renna til skálasjóða ,,minni" sumarbúða KFUM og KFUK, þ.e. Kaldársels, Hólavatns og Ölvers.
Á meðfylgjandi mynd má sjá viðskiptavin, Rakel Brynjólfsdóttur, sem festi kaup á fyrsta disknum af í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í vikunni.
Yfir hundrað manns komu að gerð disksins, þar á meðal margt félagsfólk úr KFUM og KFUK. Þorleifur Einarsson leiklistarnemi, leiðtogi hjá KFUM og KFUK og sunnudagaskólakennari er leikstjóri efnisins. Prestar Lindakirkju og forstöðumenn í Vatnaskógi í sumar, Guðni Már Harðarson og Guðmundur Karl Brynjarsson skrifuðu handritið að þáttunum á disknum ásamt Þorleifi. Aðalhlutverk eru í höndum Hafdísar Maríu Matsdóttur, leiðtoga í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK og Jóels Inga Sæmundssonar.
Efnið á disknum er hugsað sem stuðningur við trúfræðslu og bænalíf barna heima fyrir en jafnframt sem stuðningur við barnastarf kirkjunnar. Tuttugu sunnudagaskólalög og barnasálmar eru á disknum, og fjórar dæmisögur Jesú eru sagðar á skemmtilegan máta.
Allt félagsfólk KFUM og KFUK er hvatt til að kaupa diskinn í Þjónustumiðstöðinni og styðja þannig við starf félaganna.
Diskurinn er tilvalin jólagjöf fyrir börn á öllum aldri!