Dagana 25 – 29. júní verður haldinn í fyrsta sinn svokallaður Prakkaraflokkur fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 8-11 ára.
Prakkaraflokkur er sérsniðinn til að höfða til barna á þessum aldri. Til viðbótar við hefðbundið sumarbúðarstarf verður boðið upp á dagskrárliði þar sem sérstök áhersla verður á óvæntar uppákomur sem glæða þennan einstaka flokk miklu lífi, skilja eftir ógleymanlegar stundir og frábærar minningar sem enginn má láta framhjá sér fara.
Núna eru í gangi síðustu skráningardagar í þennan spennandi flokk sem hefst núna mánudaginn 25. júní og hægt er að ganga frá skráningu í síma: 588-8899 eða hér á heimasíðunni.